2025–2026

Dagskrá vetrarins 2025–2026

Count Basie

Count Basie

21. september, silfurberg

Stórsveit Reykjavíkur endurskapar eina af þekktari plötum stórsveitar Count Basie; Chairman of the Board frá 1959. Frábærar tónsmíðar og útsetningar eftir Frank Foster, Ernie Wilkins, Thad Jones og fleiri. Klassísk big band sveifla eins og hún gerist best! Sigurður Flosason stjórnar.

TelemanN

22. október, silfurberg

Stórsveitin heldur áfram samvinnu við norska hljómsveitarstjórann og útsetjarann Geir Lysne. Hann býður nú upp á dagskrá eigin útsetninga á verkum þýska barokktónskáldsins Georg Philipp Telemann. Hér er á ferðinna afar óvenjuleg og spennandi samtvinnun barokk tónlistar og stórsveitar! Geir Lysne stjórnar.

Jólafjör með Sölku Sól

Jólafjör – ÚtgáfuTÓNleikar

6. desember, norðurljós

Árlegir jólatónleikar Stórsveitarinnar eru að þessu sinni líka útgáfutónleikar nýrrar jólaplötu! Tónleikarnir eru ætlaðir börnum og foreldrum þeirra á öllum aldri. Fullt af skemmtilegum jólalögum sem allir þekkja í nýjum og spriklandi hressum útsetningum Eiríks Rafns Stefánssonar sem einnig stjórnar. Salka Sól syngur ásamt Kór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Jólaballalögin færð í nýja búninga og allir mega syngja með!  

GulLöld SVeiflunNAR

11. JANÚAR, ELDBORG

Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu og vinsælu nýárstónleika í Eldborg. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu, 1930–50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan. Gestasöngvarar ársins eru þau Hildur Vala Einarsdóttir, Selma Björnsdóttir og Bjarni Arason. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir. 

tónlist veigarS MargeirsSonar – ÚtgáfutónLEIKaR

15. febrúar, silfurberg

Útgáfutónleikar nýrrar plötu með tónlist Veigars Margeirssonar sem samin hefur verið fyrir hljómsveitina á undanförnum árum. Hér er um að ræða í senn nútímalega og aðgengilega stórsveitatónlist útsetta af mikilli fagmennsku. Veigar Margeirsson stjórnar.