Dagskrá

Dagskrá vetrarins 2026–2027 er ótrúlega spennandi og fjölbreytt; ný og gömul tónlist, spennandi gestir og eitthvað fyrir alla!

Miles Davis 100

6. september, silfurberg

Stórsveit Reykjavíkur heiðrar einn mikilvægasta jazztónlistarmann sögunnar, trompetleikarann Miles Davis. Fluttar verða magnaðar útsetningar sem Gil Evans gerði fyrir stórsveitaplötur Davis. Sigurður Flosason stjórnar.

Dave Panichi Ísland-Ástralía

11. október, silfurberg

Ástralski höfundurinn, stjórnandinn og básúnuleikarinn Dave Panichi sækir Stórsveitina heim og stjórnar dagskrá eigin verka. Panichi var um langt árabil fyrsti básúnuleikari stórsveitar Buddy Rich en hefur síðar hljóðritað með eigin stórsveitatónlist með helstu hljóðfæraleikurum stórsveitaheimsins í New York og London.

Jólafjör með þoRrra og þURu

6. desember, norðurljós

Árlegir jólatónleikar Stórsveitarinnar. Tónleikarnir eru ætlaðir börnum og foreldrum þeirra á öllum aldri. Fullt af skemmtilegum jólalögum sem allir þekkja í nýjum og skemmtilegum útsetningum. Sjónvarpsstjörnurnar Þorri og Þura kíkja í heimsókn hjálpa öllum að komast í jólaskap. Eiríkur Rafn Stefánsson stjórnar.

GulLöld SVeiflunNAR

10. JANÚAR, ELDBORG

Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu og vinsælu nýárstónleika í Eldborg. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan. Gestasöngvarar ársins eru þau Salka Sól og Jógvan Hansen. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir. 

Sigurður Flosason / Daniel Nolgård - ÚtGáFutónlEIKAR

21. febrúar, silfurberg

Útgáfutónleikar nýrrar plötu með tónlist eftir eftir Sigurð Flosason í útsetningum svíans Daniel Nolgård. Sigurður og Nolgård hafa unnið saman um langt árabil og sendu frá sér rómaða plötu með Norrbotten Big Band í Svíþjóð árið 2008 Daniel Nolgaård stjórnar.